Vísindaskóli unga fólksins hlýtur styrk úr Menningar- og viðurkenningasjóð KEA

Vísindaskóli unga fólksins við Háskólann á Akureyri hlaut styrk úr flokkum menningar- og samfélagsverkefni en þetta er í annað sinn á fimm árum sem skólinn hlýtur styrk frá KEA og nú að upphæð 300.000 þúsund kr. Vísindaskólinn sem er í umsýslu RHA – Rannsóknarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri er samfélagslegt verkefni og hafa mörg fyrirtæki og félög stutt dyggilega við bakið á Vísindaskólanum frá upphafi og hefur KEA verið eitt þeirra.

Styrkúthlutunin fór fram við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi 1. desember síðastliðinn. Þetta var í 85. skipti sem KEA veitir styrki úr sjóðnum. Alls bárust um 140 umsóknir til sjóðsins en úthlutað var rúmlega 15,6 milljónum króna til 64 aðila.

Veittir voru styrkir úr þremur flokkum: Menningar- og samfélagsverkefni, Rannsókna- og menntastyrkir og Íþrótta- og æskulýðsstyrkir.